Aðalvalmynd

Könnun

Hversu mörg egg þarf til að sjóða egg?

opið bréf til íslensku ríkistjórnarinnar

19. október 2006 klukkan 23:58
kæra íslenska ríkistjorn, ég er ekki alveg að fatta þetta, þið tókuð ekki ákvörðun um hvalveiðar heldur gerði sjávarútvegráðherra það, það er svona svipað og þegar þið tókuð ekki ákvörðun um árás á írak heldur bara Dabbi og Dori Ásgríms. Ef ég skil þetta rétt þá takið þið aldrei ákvarðanir þegar kemur að því að drepa eitthvað, þá er það bara einstaka ráðherrar sem gera það, ok ég er að fatta ykkur. en kæri/kæra sjávarútvegsráðherra, þú ætlar að leyfa hvalveiðar í atvinnuskyni, sem þýðir væntanlega að þú ert að skapa atvinnu með þessu, en afhverju að gera það núna þegar það er rétt rúmlega 1% atvinnuleysi og enginn þarf á vinnu að halda? æi ég ætla ekki að skipta mér af því. Önnur spurning?  ef ég verð ráðherra, get ég þá tekið svona ákvarðanir bara einn út í loftið, eða þarf það að innihalda dráp að einhverju leyti svo hægt sé að vera einráður í þessu? Heyrðu og eitt í viðbót, ég fékk lánaða trillu um daginn sem afi Bjarka vinar míns átti og veiddi þrjá þorska og einn marhnút rétt utan við Hrísey, er þetta lögbrot, ég er nebbla ekki með kvóta fyrir þessu?

kær kveðja
Kristján Kristjánsson
Kristján Kristjánsson
Hahhahahhah steikin þín :)
20. október 2006 klukkan 15:24
Siggi skrifar ...
 
Er ekki spurning um að setja upp hamborgara keðju í USA " Keikos " there is al little keiko in every burger
25. október 2006 klukkan 20:27
k skrifar ...
 
jú Siggi, ég held að það sé málið, seljum Keikó með kokteilsósu og gerum okkur stolt af því að vera Íslendingar
28. október 2006 klukkan 07:37

Skrifa athugasemd

Auglýsing